Komdu og gríptu með þér pizzu!
Heimilisfang
Laxárdalur 2a Skrifstofa
Tvísteinabraut, Árnesi, vinnslusalur
pizzavagninn@gmail.com \\ Sími: 899-2910
Sagan okkar
Nýr Pizzastaður!
Árið 2003 voru miklar vangaveltur á heimilinu hvort við gætum ekki opnað pizzastað sem væri færanlegur. Björgvin er húsasmiður og Petrína var búin að vinna á pizzastöðum hjá bróður sínum í nokkur ár. Fyrst á Pizzahöllinni, svo breyttist nafn staðarins í Pacman pizza. Árið 2002 var hún farin að vinna á Jóni Bakan. Hönnun og smíði vagnsins var alfarið í höndum hjónanna. Árið 2004 varð svo úr að fyrsta opnun var á Landnámsdegi 12.júní á hlaðinu hjá Þrándarholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Fyrstu opnunarstaðirnir í vagninum voru í Ásaskóla og á Hestakránni í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Pizzastaðurinn fór hægt af stað en örugglega.