Að vökva líkamann er lykilinn að því að líta
vel út og líða vel.
Þegar við eldumst, verður erfiðara fyrir
frumurnar að taka við raka.
Styrking á kollagen vefjum í líkamanum dregur úr
fínum línum og hrukkum og við fáum unglegra og
hraustlegra útlit.
Að vernda okkur gegn mengun frá umhverfinu og langtímaáhrifum
sólarinnar er mikilvægt til að halda fallegu og
heilbrigðu útliti og útgeislun um ókomin ár.
"Þú ert það sem þú borðar..."
Húðin er stærsta líffæri líkamans
og um leið það sem mæðir mest á alla okkar tíð.
Þess vegna sést best á húðinni hvað við borðum.
Húðin endurspeglar mataræði okkar og lifnaðarhætti.
Með einstakri gelformstækni sinni hefur Agel
Enterprises umhverft því hvernig við horfum til umhirðu
húðarinnar.
GLO er gelformsvara sem við borðum
og þannig er fegurð húðarinnar styrkt innan frá og
út í gegn. Það er einfalt að sjá á innihaldsefnum
GLO hvers vegna varan hefur þessa gríðarlegu virkni
en árangur sést á einungis fáum dögum eða vikum.
Í rannsóknum hefur ótrúlegur munur komið í ljós
– þar sem fólk hefur eingöngu notað GLO einu sinni
til tvisvar á dag.
Helstu innihaldsefni GLO og virkni þeirra:
Þrúgukjarnaþykkni er
þekkt fyrir mikinn andoxunarkraft en náttúruleg
andoxunarefni þess eru um 50 sinnum öflugri en E-vítamín
og jafnvel öflugri en betakarótín. Það sem meira er
– þessi efni eru í blóðstreyminu allt upp í 3 sólarhringa
sem styrkir blóðrásina og æðakerfið.
Olía úr grænu tei gefur
mikinn raka. Grænt te er þekkt fyrir andoxunarhæfni sína
en það inniheldur meðal annars cathecin pólífenól.
Þá er það ríkt af A, B og E vítamíni.
Lútein hefur
verið rannsakað og í ljós komið að efnið eykur
raka í húðinni, teygjanleika hennar og hækkar lípíðstyrk
hennar sé það tekið daglega. Þá hjálpar lútein húðinni
við að verja sig gegn útfjólubláum geislum sólarinnar.
Lesitín kemur
við sögu í uppbyggingu frumuhimna í líkamanum.
Lesitín samastendur af B-vítamíni, fosfórsýru, ínósítóli,
kolín og linoleic sýrum.
Aloe Vera er
alþekkt fyrir mátt sinn en efnið fer í gegnum húðina
fjórum sinnum hraðar en vatn. Þannig getur Aloe Vera
látið húðinni í té þann raka sem hún þarfnast.
Í Aloe Vera er mikið af ensímum, próteinum, E og C-vítamíni,
sínki, amínósýrum og pólísakkaríðum.
Túmerik inniheldur
curcumin en það minnkar hrukkur og djúpar línur og
gefur húðinni jafnari lit ásamt því að hafa bólgueyðandi
eiginleika.
Tocotrienol er
öflugasti andoxunargjafinn í E-vítamín fjölskyldunni.
Sýnt hefur verið fram á í rannsóknum að efnið viðheldur
varnarkerfi húðarinnar og hamlar öldrunarferli.
Q-10 er mjög
þekkt andoxunarefni sem verndar frumurnar gegn
stakeindum.
Horsetail er
planta sem þekkt er fyrir að auka blóðstreymi og hjálpa
bandvef að ná sér eftir álag. Í plöntunni eru efni
sem eru nauðsynleg elastín- og kollagenframleiðslu.